lau. 10. maí 2025 19:20
Utanríkisráðherra Indlands, Vikram Misri, segir brot Pakistana gegn vopnahléinu vera ítrekuð.
Indverjar hefna sín á meintum brotum Pakistana

Utanríkisráðherra Indlands, Vikram Misri, segir Pakistan hafa ítrekað brotið gegn vopnahléi sem samþykkt var fyrir aðeins nokkrum klukkutímum. Indverskar hersveitir séu nú að beita gagnárásum.

Vopnahlé var samþykkt á milli landanna í hádeginu í dag en Pakistanar voru sakaðir um að rjúfa það skömmu síðar.

Vopnahlé á milli Indlands og Pakistans

Segja Indverja vera að fremja brot

Shehbaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, minntist aftur á móti ekkert á ásakanir Indverja í ávarpi sem hann flutti fyrr í kvöld en Sharif hrósaði þar Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir hans aðkomu að vopnahlésviðræðunum og þakkaði einnig öðrum ríkjum.

Utanríkisráðuneytið í Pakistan hefur hins vegar svarað ásökum Misri og sagt að landið sé staðráðið í að framfylgja vopnahléinu.

Þá sakar ráðuneytið Indland um að fremja brot gegn vopnahléinu, sem pakistanskir hermenn takist nú á með stillingu.

Segir í yfirlýsingu ráðuneytisins að öll vandamál varðandi framkvæmd vopnahlésins ætti að leysa með samskiptum á viðeigandi stigum.

Pakistanar strax sakaðir um að rjúfa vopnahlé

Veita „fullnægjandi og viðeigandi“ viðbrögð

Fyrr í dag ómuðu sprengingar í Srinagar í Kasmír, sem er undir stjórn Indlands, aðeins nokkrum tímum eftir að Trump tilkynnti um vopnahléið.

Þá skrifaði Omar Abdullah, forsætisráðherra í Jammu og Kasmír, á samfélagsmiðilinn X að það væri „ekkert vopnahlé“ og birti með færslunni myndband þar sem greinilega heyrist í skothljóðum.

Um 60 manns hafa fallið í árásunum vegna átaka Indlands og Pakistans síðustu daga.

til baka