Forsíða |
Innlent | Erlent | Íþróttir | Tækni | Fólk | 200 mílur | Smartland | Matur | | Fjölskyldan | Sporðaköst | Bílar | K100 | Ferðalög | Viðskipti | Blað dagsins
Innlent
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, verða með erindi á árlegri ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins.
meira
Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi í nýjum þjóðarpúlsi Gallup en Baldur Þórhallsson fylgir fast á hæla hennar. Halla Hrund Logadóttir er hástökkvari könnunarinnar.
meira
Virðulegi forseti. Við tölum ekki nógu mikið um hákarla í þessum sal, sagði Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sem gerði gerði starfsemi smálánafyrirtækja að umfjöllunarefni á þingfundi í dag.
meira
Veiðidögum á grásleppuvertíðinni hefur verið fjölgað úr 40 í 55 samkvæmt reglugerð sem gefin var út í gær. Umgjörð veiðanna virðist taka tíðum breytingum.
meira
Það að ferðamenn reyni að komast of nálægt gosstöðvum við Sundhnúkagíga er vandamál sem hefur einnig komið upp fyrri eldgosum á Reykjanesskaga. Ekki hefur þó þurft að kalla til björgunarsveitir í tengslum við núverandi gos, en athygli vakti þó á dögunum að reynt var að aka Dacia Duster-bifreið utanvegar við leiðigarð á svæðinu. Sú bifreið er þó farin núna.
meira
Kapphlaupið um embætti forseta Íslands er nú á milli fjögurra frambjóðenda, að mati Eiríks Bergmanns, prófessors í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst. Baldur Þórhallsson, Katrín Jakobsdóttir, Halla Hrund Logadóttir og Jón Gnarr mælast með mest fylgi í fylgiskönnun Prósents sem birtist í blaðinu í gær.
meira
Einn sakborningur er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að andláti konu í fjölbýlishúsi á Akureyri, að sögn Skarphéðins Aðalsteinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra.
meira
Meirihluti starfsfólks sveitarfélaga sem að skipulagsmálum vinnur sem og meirihluti skipulagsráðgjafa þekkir dæmi þess að spilling hafi haft áhrif á skipulagsákvarðanir sveitarfélaga.
meira
Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir hefur verið skipuð rektor Háskólans á Akureyri frá og með 1. júlí.
meira
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd þess ákvað á fundi sínum í dag að vísa viðræðum um endurnýjun kjarasamninga Sameykis og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til ríkissáttasemjara.
meira
Þrítugasta alþjóðlega sjávarútvegssýningin Seafood Expo Global hófst í Barselóna á Spáni í gær og er hún sú stærsta sem hefur verið haldin til þessa. Að þessu sinni taka þátt 2.244 fyrirtæki frá 87 ólíkum ríkjum.
meira
Nær heiðskírt var yfir landinu í gær og fyrir vikið tókst gervitungli bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA að fanga skýra mynd af landinu utan úr geimnum.
meira
Hægt er að fullyrða að bylting hafi orðið í samskiptatækifærum skipverjanna á Ljósafelli SU, en þar er nú að finna tengingu við Starlink sem skilar háhraða-interneti með aðstoð gervihnatta sem skotið er á loft af Space X sem er að stórum hluta í eigu auðkyfingsins Elon Musk.
meira
Í dag reynir japanskur skíðastökkvari við heimsmet í Hlíðarfjalli í samstarfi við drykkjarvöruframleiðandann Red bull.
meira
Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á andláti í fjölbýlishúsi hefur ekki teljandi áhrif á rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á andláti í sumarhúsi í Kiðjabergi, að sögn Jón Gunnars Þórhallssonar, yfirlögregluþjóns á Suðurlandi.
meira
Starfsmenn veiðarfæragerðar Skinneyjar-Þinganess eru ánægðir með netin frá FISA í Perú. Vekja þeir athygli á að það hafi reynst vel í 210 millimetra pokanum á Þinganesi SF sem náði 5,9 tonnum af hágæða þorski á skömmum tíma.
meira
Barnamenningarhátíð í Reykjavík var sett í Hörpu í morgun en hátíðinni lýkur á sunnudaginn.
meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í dag fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum vegna rannsóknar á mansali, skipulagðri brotastarfsemi og peningaþvætti í tengslum við viðskiptaveldi Davíðs Viðarssonar, áður Quang Lé.
meira
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni sem grunaður er um stórfellda líkamsárás aðfaranótt sunnudagsins 10. október 2021 fyrir utan Bridgesamband Íslands í Síðumúla.
meira
Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, segir að hann hafi birt heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag vegna þess að margir eiga um sárt að binda vegna geðrænna vandamála en fái ekki næga aðstoð.
meira
fleiri