Úkraínumaður til Eyjamanna

Eyjamenn fá liðsauka frá Úkraínu.
Eyjamenn fá liðsauka frá Úkraínu. mbl.is/Ómar

Úkraínski knattspyrnumaðurinn Denis Sytnik er væntanlegur til úrvalsdeildarliðs ÍBV á næstu dögum en samið verður við hann til tveggja ára, samkvæmt frétt Eyjafrétta í dag.

Sytnik kemur frá 3. deildarliðinu Hirnyk-Sport Komsomolsk í heimalandi sínu og kemur til Eyja í vikunni ef flugsamgöngur leyfa. Sytnik var til reynslu hjá ÍBV fyrir nokkrum vikum og skoraði þá m.a. fjögur mörk í æfingaleik gegn Hvöt.

Þá er enski miðvörðurinn Dominic Casciato væntanlegur til reynslu hjá ÍBV á næstu dögum. Hann kemur á eigin vegum og hefur spilað í bandaríska háskólafótboltanum undanfarin ár. Litlar líkur eru á að ensku strákarnir Chris Clements og Ajay Leitch-Smith komi aftur til Eyja í sumar.

Sjá nánar frétt Eyjafrétta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert