Zlatko Krickic til Fredrikstad

Zlatko Krickic er kominn í raðir Fredrikstad.
Zlatko Krickic er kominn í raðir Fredrikstad. www.hk.is

Zlatko Krickic, unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu, er genginn til liðs við norska félagið Fredrikstad frá HK í Kópavogi.

Zlatko, sem er 18 ára gamall, lék 10 leiki með HK í 1. deildinni í fyrra en flutti síðan til Noregs í vetur og hefur æft með Fredrikstad, bæði með aðalliði og unglingaliði félagsins. Fredrikstad hefur leikið í úrvalsdeildinni undanfarin ár en féll niður í 1. deild síðasta haust.

Zlatko, sem er fæddur og uppalinn á Íslandi, hefur spilað 6 leiki með U17 ára landsliði Íslands og einnig tvo leiki með U16 ára landsliði Serbíu en hann er með tvöfalt ríkisfang.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert