Reglur Árvakurs hf. um auglýsingar og samstarfsverkefni

Ritstjórnarefni

Miðlar Árvakurs hf. leggja mikla áherslu á áreiðanleika umfjöllunar sinnar. Ritstjórn þessara miðla starfar í hvívetna á forsendum vandaðrar blaðamennsku.

Auglýsingar og kynningar

Auk ritstjórnarefnis birta miðlar Árvakurs hf. margskonar auglýsingar og kynningarefni sem auglýsendur og samstarfsaðilar greiða fyrir. Þess er ávallt gætt að notendur miðlanna sjái glöggt að um keypt efni er að ræða. Þessu efni má skipta í tvennt:

Hefðbundnar auglýsingar: Efni frá auglýsendum sem er unnið á þeirra forsendum. Áhersla er ávallt lögð á að auglýsingarnar uppfylli ákvæði laga, samræmist almennu velsæmi og séu vel aðgreindar frá ritstjórnarefni. Árvakur hf. áskilur sér rétt til að hafna birtingu auglýsinga uppfylli þær ekki þessi skilyrði. Árvakur hf. áskilur sér einnig rétt til að merkja auglýsingar með orðinu „Auglýsing“ sé talin hætta á að viðkomandi auglýsing líkist um of ritstjórnarefni.

Samstarfsverkefni: Miðlar Árvakurs hf. bjóða upp á samstarf við þá sem vilja koma ákveðnum upplýsingum, hugmyndum vörum eða þjónustu á dagskrá með umfjöllun. Efni af þessu tagi er merkt „Í samstarfi við [nafn samstarfsaðila]“ eða „Kostuð umfjöllun“ til aðgreiningar frá hefðbundnu ritstjórnarefni. Þetta efni þarf að uppfylla þær kröfur um áreiðanleika sem gerðar eru til ritstjórnarefnis og vera áhugavert fyrir lesendur að mati ritstjórnar. Ritstjórn hefur síðasta orðið um efnistök og hvort slíkt efni er unnið og birt.

Samningi um auglýsingar, hefðbundnar eða óhefðbundnar, eða samstarfsverkefni fylgja aldrei fyrirheit um fyrirgreiðslu á ritstjórn blaðsins þegar kemur að annarri umfjöllun eða fréttaskrifum.