Sunnudagsblað Laugardagur, 30. nóvember 2024

Tríó í fjarbúð

Hvað er Meraki tríó? Við erum Rósa Guðrún Sveinsdóttir, söngur, flauta og saxófónn, Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló og Sara Mjöll Magnúsdóttir, píanó. Við erum með bakgrunn úr ólíkum tónlistarstílum, frá barokktónlist og klassík yfir í popp og djass Meira

Arnar færi með liðið á flug!

… þannig mætti auðvitað sameina þetta tvennt í einum manni, innlendan og erlendan þjálfara. Meira

Morgunblaðið efndi til líflegra leiðtogaumræðna í Hádegismóum síðastliðinn fimmtudag. Hart var tekist á.

Kattarhvarf og kosningaskjálfti

Nótt var lögð við dag í varnaraðgerðum vegna nýjasta eldgossins við Sundhnúkagíga enda rann hraunelfur að mannvirkjum í Svartsengi . Það stóð um tíma tæpt en af miklu harðfylgi tókst að afstýra frekara tjóni en orðið hefur Meira

Vilja undir pilsfald Evrópusambandsins

… ófáir eru þeir stjórnmálamenn sem þykir ágætt að láta fjarlægt vald taka af þeim ómakið, sérstaklega hvað varðar það sem óvinsælt er. Meira

„Það skiptir mig máli að myndlist mín sé aðgengileg,“ segir Auður Lóa.

Húmor og gleði

Listakonan Auður Lóa Guðnadóttir sýnir verk úr pappamassa á einkar skemmtilegri sýningu í Þulu. Þar koma kettir meðal annars við sögu. Meira

Magnús Jóhann og Guðrún Ýr kusu að fara í ýmsar áttir með lagavalið á nýju plötunni.

Sólardagarnir fóru í að búa til snjó

Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, og Magnús Jóhann Ragnarsson píanóleikari hafa sent frá sér plötuna Nokkur jólaleg lög. Þar er að finna gömul og sígild jólalög í nýjum búningi í bland við lög úr óvæntari áttum. Meira

Kjartan Jónsson við minjagripaskápinn góða á heimili sínu sem helgaður er Afríku.

Búinn að gefa sálina í starfið þarna

Dr. Kjartan Jónsson, prestur og mannfræðingur, bjó um 12 ára skeið í Afríkuríkinu Keníu ásamt fjölskyldu sinni á 9. og 10. áratugnum, þar sem hann boðaði kristna trú. Starfið hafði djúpstæð áhrif á hann og fólkið snerti hjarta hans fyrir lífstíð. Meira

„Raunar er með nokkrum ólíkindum að ekki skuli hafa verið skrifuð ævisaga Ingvars áður,“ segir Jakob.

Vinsæll athafnamaður

Ævisaga Ingvars Vilhjálmssonar er komin út. Höfundurinn Jakob F. Ásgeirsson segir efamál að nokkur íslenskur stórathafnamaður hafi haft jafn gott orð á sér meðal samferðamanna sinna og Ingvar sem rak eitt stærsta fyrirtæki landsins, Ísbjörninn á Seltjarnarnesi og í Reykjavík. Meira

Nútímalegt háhýsi gnæfir yfir hús arkitektsins Keisukes Oka í hverfinu Mita í Tókýó.

Handsmíðað furðuhús

Í Tókýó stendur lítið furðuhús innan um háhýsi. Arkitekinn og eigandinn var 20 ár að reisa húsið, sem nú verður flutt um tíu metra á teinum vegna framkvæmda. Meira

Rithöfundurinn Barbara Taylor Bradford eignaðist fjölda aðdáenda á farsælum ferli.

Metsöluhöfundur kveður

Barbara Taylor Bradford er látin, 91 árs gömul. Á ferlinum skrifaði hún 40 bækur sem hafa selst í rúmlega 90 milljónum eintaka og komið út á um 40 tungumálum í 90 löndum. Meira

Hringekjan er fagurlega skreytt, eins og umhverfi hennar.

Fegurð jólanna

Húsdýragarðurinn er kominn í jólabúning. Ljósin skína skært og garðurinn hlýtur að teljast með þeim fegurstu á landinu. Oddur Friðriksson hefur unnið við að prýða garðinn og hefur smíðað gripi sem þar eru. Hann vill að garðurinn verði vin í jólunum. Meira

The Lemon Pipers villtust af braut.

Látnir kokgleypa kúlutyggjó

Bandarísku hljómsveitinni The Lemon Pipers varð ekki langra lífdaga auðið í ofanverðri sexunni. Hún náði þó að koma einu lagi á topp vinsældalistans, Green Tambourine Meira

Veðurfregnir og jarðarfarir lesin í tætlur

Hanastél; reyfarar, bók Nóbelsverðlaunahafa og matreiðslubækur eru á borðum heimilisins. Satu Rämö býr á Ísafirði og hefur slegið í gegn með reyfurum sem gerast þar en eru skrifaðir á finnsku. Hildur er komin út á íslensku og er afar spennandi enda aðalsmerki góðs reyfara Meira

Kötturinn Diego eins og þjóðin þekkir hann, sofandi á ljósritunarpappír í A4 í Skeifunni. Tímabundið hvarf hans olli uppnámi í samfélaginu.

Hvaða máli skiptir köttur?

Löggan í Kardemommubænum er örugglega þannig að hún myndi leggja metnað sinn í að finna kött myndi hann skyndilega gufa upp. Meira

Erfitt getur verið að fara á fætur undir vögguvísum og útfararsálmum.

Léttari tónlist á morgnana

Árrisull ritaði Velvakanda í Morgunblaðinu bréf í svartasta skammdeginu árið 1954 og bað um aðstoð við að koma skilaboðum til þeirra sem falið hafði verið það ábyrgðarmikla starf að velja morguntónlist Ríkisútvarpsins alla virka daga Meira