Íþróttir Föstudagur, 9. maí 2025

Dramatík Hin 16 ára gamla Elísa Birta skoraði sigurmark HK.

Dramatík í sigrum Fylkis og HK

Fylkir er á toppnum í 1. deild kvenna í knattspyrnu eftir að hafa unnið dramatískan sigur á Grindavík/Njarðvík, 3:2, í annarri umferð deildarinnar í Árbærnum í gærkvöldi. Fylkir er með sex stig í efsta sæti og Grindavík/Njarðvík er í fimmta sæti með þrjú Meira

Sauðárkrókur Sigtryggur Arnar Björnsson og Hilmar Smári Henningsson í baráttunni í Síkinu í gærkvöld en þeir léku báðir mjög vel í leiknum.

Sögulegur Stólasigur

Fyrsti leikur í lokaúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik fór fram í stappfullu Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöld. Tvö bestu lið landsins, Tindastóll og Stjarnan, áttust þar við. Leikurinn var eins spennandi og leikir geta orðið og endaði hann… Meira

Úrslit Harry Maguire og Mason Mount fagna sigri Manchester United í gærkvöldi. Mount kom inn á sem varamaður og skoraði tvívegis.

United og Tottenham mætast í úrslitum

Ensku liðin Manchester United og Tottenham Hotspur mætast í úrslitaleik Evrópudeildar karla í knattspyrnu eftir að hafa unnið örugga sigra í síðari leikjum sínum í undanúrslitum keppninnar í gærkvöldi Meira

Körfuboltamaðurinn DeAndre Kane hefur samið við Grindvíkinga um að leika…

Körfuboltamaðurinn DeAndre Kane hefur samið við Grindvíkinga um að leika áfram með þeim á næsta tímabili en hann hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá þeim undanfarin tvö ár. Kane er 35 ára Bandaríkjamaður með ungverskt vegabréf með mikla reynslu … Meira

Sjö Bjarki Már Elísson skorar eitt af mörkum sínum í Sarajevo.

Ísland eitt þriggja með fullt hús stiga

Ísland, Króatía og Slóvenía eru einu liðin í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik sem eru með fullt hús stiga, 10 stig, eftir fimm umferðir af sex í keppninni en fimmtu umferðinni lauk í gær Meira

Tvenna Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Blika og stekkur hér upp með Genevieve Crenshaw, markverði Tindastóls.

Þróttarkonur í titilbaráttu?

Þróttarkonur gera sig líklegar til að elta Breiðablik í baráttunni um Íslandsmeistaratitil í fótbolta á meðan Valskonur eru komnar í erfiða stöðu, sex stigum á eftir toppliðunum, eftir tvo tapleiki í röð Meira

Öruggt Leikmenn Chelsea fagna sigurmarki Kiernan Dewsbury-Hall, lengst til hægri, gegn Djurgården í gærkvöldi. Chelsea vann samanlagt 5:1.

Chelsea og Real Betis í úrslitaleikinn

Chelsea tryggði sér í gærkvöld sæti í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í knattspyrnu karla með því að leggja Djurgården að velli, 1:0, í síðari leik liðanna í undanúrslitum á Stamford Bridge í Lundúnum Meira