Menning Föstudagur, 9. maí 2025

Ferðalag Þríeykið í heimildarmyndinni. Frá vinstri Lars Hammar, Fredrik Wikingsson og Filip Hammar.

Björgunarleiðangur varð að kvikmynd

„Hún er skemmtileg og fyndin en það gráta líka margir,“ segir Fredrik Wikingsson, einn höfunda Den sista resan • Tekjuhæsta heimildarmynd sænskrar kvikmyndasögu í Bíó Paradís Meira

Einar Lövdahl

Gyldendal ætlar að gefa út Gegnumtrekk

Danska bókaforlagið Gyldendal hefur ákveðið að gefa út skáldsöguna Gegnumtrekk eftir Einar Lövdahl. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umboðsskrifstofunni Reykjavík Literary Agency, en þar á bæ segjast starfsmenn finna fyrir miklum áhuga erlendis á bókinni Meira

Málmur Plakat keppninnar í ár.

WMB-hljómsveitakeppnin í Iðnó á morgun

Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin í Iðnó annað kvöld, 10. maí, kl. 19, en húsið verður opnað kl. 18.30. „Í ár keppa sjö sveitir í úrslitum og mun fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum velja eina af þeim til þess að… Meira

Tíu Útskriftardansnemar ársins.

Tveir heimar mætast í útskriftarsýningu

Útskriftarsýning nema í samtímadansi við Listaháskóla Íslands verður frumsýnd í Black Box-rými Listaháskóla Íslands á Laugarnesvegi 91, en gengið er inn neðan við byggingu um inngang næst Sæbraut. Í tilkynningu frá LHÍ kemur fram að sýnd verði tvö… Meira

Fremst Lesley Manville í Magpie Murders.

Tvær morðgátur í sömu sögunni

Bretinn Anthony Horowitz hefur lengi verið einn af mínum uppáhaldsglæpasagnahöfundum. Hann hefur einnig skrifað handrit að mörgum breskum sjónvarpsþáttum og þetta tvennt rennur saman í þáttunum Magpie Murders, sem RÚV sýnir nú, en Horowitz skrifaði… Meira

Fleiri greinar úr þessum flokki í vikunni

Laugardagur, 10. maí 2025

Málþing Kafað verður í verk Vasulka og rætt um áskoranir og tækifæri sem felast í varðveislu tímatengdra verka.

Um varðveislu listaverka Vasulka

Málþing um brautryðjendastarf Steinu og Woody Vasulka í Norræna húsinu • Fjallað um varðveislu stafrænna og tímatengdra miðla • Erlendir sérfræðingar í forvörslu frá virtum söfnum Meira

Mergur og bein Tónlist Heklu smýgur bókstaflega inn í mann.

Eins turns tal

Hekla heldur áfram að móta sinn einstaka hljóðheim á plötunni Turnar sem út kom fyrir stuttu á vegum Reykjavik Record Shop. Meira

Fjársjóðsleit Að mati rýnis er Síðasta ferðin „mynd sem fólk ætti ekki að láta fram hjá sér fara“.

Feðgar á ferðalagi

Bíó Paradís Den sista resan / Síðasta ferðin ★★★★· Leikstjórn: Filip Hammar og Fredrik Wikingsson. Handrit: Justin Kuritzkes og William S. Burroughs. Aðalleikarar: Filip Hammar, Fredrik Wikingsson, Lars Hammar, Tiina Hammar, Emelie Boursault-Atlan, David Socquet-Clerc, Carole Papini. 2024. Svíþjóð. 95 mín. Meira

Áríðandi ljóð Dinçer Güçyeter var ásamt Carson og Schiffer gestur á nýafstaðinni Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Óbærileg þekking í svartholinu

Og verkin sitja öll í Svartholi Tunglsins, og óhætt að mæla með við ljóðaunnendur. Meira

Fimmtudagur, 8. maí 2025

Mikilvæg Litla „bóndakonan“ Edda María, 19 mánaða, leiðir mömmu og ömmu að fjárhúsunum, tilbúin að skipa heyrnarlausu kindinni Sunnu fyrir verkum. Saga og myndbönd af þessu óvænta tvíeyki hafa kannski haft meiri áhrif á almennan lesanda í daglegu fréttaflæðinu en margur gerir sér grein fyrir.

Af pöndufréttum og dómsdagsskruni

Eru jákvæðar fréttir og uppörvandi sögur mikilvægar fyrir samfélagið– eða eru þær bara krúttlegur útúrdúr? Meira

Borg tískunnar Helen er vinsæl fyrirsæta í einni af stærstu tískuborgum heims.

„Fataveikin“ byrjaði mjög snemma

Helen Óttarsdóttir starfar sem fyrirsæta í einni af aðaltískuborgum heims, Lundúnum. Hún segir föt skipta miklu máli og er mjög ákveðin þegar kemur að eigin klæðaburði. Meira

Virtur Christian Marclay þykir með merkari listamönnunum í dag en verk hans er nú til sýnis á Íslandi.

Þráhyggja sem varði í þrjú ár

Ávanabindandi vídeólistaverk sem varir í sólarhring • Haldinn sama kvíða um tímann og hver annar • Valdi ódýrustu og þægilegustu IKEA-sófana • 1.440 mínútum dagsins gerð skil í verkinu Meira

Hallgrímur Helgason (1959) Love & Love, The Good Bedroom, 1999 Olía á striga (200 x 262 cm)

Húmor, léttleiki og kaldhæðnislegt raunsæi

Textinn birtist í 140 ára afmælisriti Listasafns Íslands sem kom út í október 2024. Verkið er í eigu safnsins. Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17. Umfjöllunin er birt í samvinnu við safnið. Meira

Vélmenni Kraftwerk á sviði, eða öllu heldur, vélmenni sveitarinnar.

„Sofðu unga tölvan mín …“

Gervigreind í tengslum við tónlistarsköpun hefur vakið mikið umtal að undanförnu og sitt sýnist hverjum. Frelsandi og nýtilegt mögulega? Eða það versta sem komið hefur fyrir tónlist til þessa? Meira

Rödd Í VOX umbreytist rödd Jónsa í ljósbylgjur sem sveiflast eftir fjórum stórum LED-skjáum og umlykja gesti.

Jónsi sýnir í marglofuðu safni

Evrópufrumsýning verksins „VOX“ eftir Jón Þór Birgisson í Kunstsilo í Noregi • Innsetning þar sem öll skilningarvit eru virkjuð • Röddin í aðalhlutverki • Langt ferli og flókið í uppsetningu Meira

Bates Hann harðneitar að láta beygja sig.

Lítilmagni rís upp gegn ofureflinu

Ég horfði á fyrsta þátt á RÚV í breskri þáttaröð sem segir frá sannsögulegum atburðum frá því fyrir stuttu, eftir aldamótin 2000. Þáttaröðin, sem heitir Bates gegn póstþjónustunni (Mr Meira

Miðvikudagur, 7. maí 2025

Spilagleði Guðmundur Jónsson og Guðmundur Gunnlaugsson skipa dúettinn GG Blús.

Mikil útrás og gaman að spila

„Það er krafturinn og tjáningin sem við erum að sækja að sama brunni,“ segir Guðmundur Jónsson gítarleikari um dúettinn GG Blús sem hann skipar með nafna sínum Gunnlaugssyni Meira

Viveca Sten Persónur bókarinnar „mynda góða og trúverðuga heild“.

Á flughálum brautum

Glæpasaga Mýrarljós ★★★★· Eftir Vivecu Sten Elín Guðmundsdóttir íslenskaði. Ugla 2025. Kilja 443 bls. Meira

Þriðjudagur, 6. maí 2025

Skúlptúr Á meðal verka á Listin er okkar eina von! er verk Auðar Lóu Guðnadóttur, Guerilla Girls, frá 2020.

Eingöngu verk eftir núlifandi konur

Sýningunni List er okkar eina von! lýkur í vikunni • Söguleg staðreynd að það hallar á hlut kvenna í safneign Listasafns Reykjavíkur • Samtal við Gjörningaklúbbskonur á lokakvöldinu Meira

Tónlist Marína Ósk prófar sig áfram með nýja tónlistarstíla á breiðskífunni Oh, Little Heart sem kom út nýverið.

Gáttirnar opnuðust

Kántrí áberandi á nýrri breiðskífu Marínu • Þurfti að leyfa sér að leita á önnur mið • Heldur tónleika í júní Meira