Fréttir Þriðjudagur, 4. nóvember 2025

Íslandspóstur fær 681 milljón frá ríkinu

Byggðastofnun fellst á umsókn um styrk vegna alþjónustu Meira

Notuðu gröfur á klakann

Helstu stofnbrautir og vegir á höfuðborgarsvæðinu koma ágætlega undan fannferginu í síðustu viku og klakabunkunum sem svo fylgdu. Þó ber eitthvað á því að yfirborðsmerkingar hafi horfið með klakanum er menn Vegagerðarinnar hreinsuðu göturnar Meira

Reykjavíkurflugvöllur Minnstu munaði að tvær flugvélar rækjust saman.

Bregðast við eftir alvarlegt atvik yfir Kársnesi

Isavia ANS, sem annast flugleiðsögu á Íslandi, og Isavia Innanlandsflugvellir, sem rekur Reykjavíkurflugvöll á grundvelli þjónustusamnings við ríkið, hafa farið ítarlega yfir skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa um atvik sem átti sér stað yfir Kársnesi í október í fyrra Meira

Fjársvik upp á hundruð miljóna

Lögregla rannsakar stórt fjársvikamál en rannsóknin lýtur að um 400 milljónum króna. Fleiri en einn einstaklingur eru taldir hafa tekið beinan þátt í því að sækja fjármuni með ólögmætum hætti en fimm hafa verið handteknir, bæði íslenskir og erlendir ríkisborgarar Meira

Ísafjörður Ísafjörður er vinsæll áningarstaður skemmtiferðaskipa.

Kvartmilljón farþega kom til Ísfjarðar

Tekjur hafnarsjóðs voru 854 milljónir • 188 skemmtiferðaskip á árinu Meira

Umfelgun Mikið hefur verið að gera á dekkjaverkstæðum að undanförnu, enda kom veturinn næsta óvænt.

Um 60% ökumanna velja negld vetrardekk

Margir voru vanbúnir • Naglar bestir í hálku • Eina vitið Meira

Rjúpa Ófriður steðjar nú að rjúpunni og verður svo enn um sinn.

Tíðarfar hrekkir rjúpnaveiðimenn

„Ég hef heyrt að tíðarfarið hafi verið að hrekkja menn, bæði mikill snjór sem féll fyrstu rjúpnaveiðihelgina en síðan kom þíða og þoka sem gerði veiðimönnum erfitt fyrir,“ segir Áki Ármann Jónsson formaður Skotvís í samtali við… Meira

Steypa Ein steypudæla og 22 steypubílar voru notuð í verkið sem hófst kl. 3 eftir miðnætti og lauk kl. 16 síðdegis.

Fyrsta steypa að nóttu til við Ölfursárbrúna

Steypt var undirstaða landstöpuls vestan megin við Ölfusá Meira

Laugar Sérstök vellíðunarstöð verður á hótelinu Hugarró í Hvalfirði.

Hringlaga hótel þarf að bíða

Bið verður á að framkvæmdir geti hafist við byggingu hringlaga hótels í Hvalfirði. Skipulagsstofnun hefur sent tillögu um breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar aftur til sveitarfélagsins með þeim tilmælum að endurskoða þurfi umhverfismat tillögunnar áður en hún verði staðfest af stofnuninni Meira

Viðhald Breiðholtslaug var lokað vegna viðhaldsframkvæmda í vor.

Vilja úttekt á öllum sundlaugum

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í menningar- og íþróttaráði Reykjavíkurborgar hafa farið fram á að unnin verði greinargerð um framkvæmdir við sundlaugar Reykjavíkurborgar í ár. Sem kunnugt er hefur sundlaugum ítrekað verið lokað Meira

Vetur Víða mátti sjá tré með bognar greinar út af snjónum mikla sem féll.

Trén þola áfallið

Trjágreinar brotnuðu undan mikilli snjóþyngd • Hefur ekki áhrif á næsta ár Meira

Harpa Elín Haraldsdóttir

Harpa Elín Haraldsdóttir, forstöðumaður Kötluseturs í Vík í Mýrdal, er látin, 45 ára að aldri. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi sl. laugardag, 1. nóvember. Harpa fæddist 28. janúar 1980, dóttir Helgu Þorbergsdóttur hjúkrunarfræðings og Haralds Inga Haraldssonar myndlistarmanns Meira

Kosningar Á sunnudag var síðasti dagurinn til að kjósa utankjörfundar til borgarstjóra og metþátttaka hafði verið, ekki síst hjá ungum kjósendum.

Útkoman verður skilaboð til demókrata

Öðruvísi kosningar en vanalega • Meiri kosningaþátttaka • Pressa á Curtis Sliwa frá herbúðum Cuomo • Ungt fólk vill breytingar • Sigur Mamdani mun kalla á nýjar áherslur demókrata Meira

Hafnarstræti 16 Húsið er talið mikilvægur hluti götumyndar í elsta hluta höfuðborgarinnar.

Sögufrægt hús sett á söluskrá

Reykjavíkurborg samþykkir að selja Hafnarstræti 16 • Friðað hús enda byggt árið 1824 Meira

Uppgjör Afkoma Ríkisútvarpsins hefur verið undir væntingum í ár.

Áætlanir ekki staðist hjá RÚV

Tap Ríkisútvarpsins fyrstu sex mánuði ársins nam 148 milljónum króna. Afkoma rekstrar fyrir fjármagnsgjöld, afskriftir og tekjuskatt batnaði hins vegar um 211 milljónir króna á milli ára. Er það meðal annars rakið til þess að rekstrarkostnaður hafi… Meira

Kosningar Barack Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseti mætti á dögunum í New Jersey til að styðja við frambjóðanda demókrata til ríkisstjóra.

Kjósa nýja ríkisstjóra í Virginíu og New Jersey

Skilaboðaskandall í Virginíu • Spennandi kosningar Meira

Afganistan Meðlimur í öryggissveitum talibana gengur framhjá rústum verslana í Samangan-héraði Afganistan.

Fjöldi heimila í rúst eftir stóran skjálfta

Rúmlega 20 manns látnir og um 530 slasaðir í Afganistan Meira

Kjarnorkutilraun Hér má sjá tilraunasprengingu sem Bandaríkjamenn gerðu árið 1953 í Nevada-ríki með svonefnd vígvallarkjarnorkuvopn.

Er „ný öld kjarnorku- vopna“ að renna upp?

Alexander Stubb Finnlandsforseti lýsti því yfir í gær að „ný öld kjarnorkuvopna“ væri nú hafin, þar sem mikilvægi kjarnorkuvopna væri nú að aukast á nýjan leik. Fól það meðal annars í sér að sögn Stubbs að hugmyndir um stöðugleika á… Meira

Við Langeyrarmalir Stutt er í sjóinn úr gufunni fyrir mæðgurnar og aðra.

Öðruvísi upplifun

Frítt fyrir eldri aldurshópa í Herjólfsgufuna í Hafnarfirði • Lára Alexandersdóttir sennilega elsti gusumeistarinn Meira