RVK Fringe hefst á laugardag og stendur yfir til 11. júlí. 70 atriði verða sýnd yfir 150 sinnum á átta dögum og 15 stöðum víða um Reykjavík. Á laugardag kl. 17 verður flutt opnunarsýningin Sauðatónar í Árbæjarsafni og vöngum velt yfir því hvers konar tónlist sauðfé vilji hlusta á. Tónskáldið og rafgítarleikarinn Hafdís Bjarnadóttir og Passepartout Duo munu leita svara við þeirri spurningu en Hafdís hefur heimsótt sveitabæi, hljóðritað fjárhúshljóð og spilað á gítar fyrir kindur til að vinna tónlist út frá þessum heimsóknum. Hugmyndina að því að semja tónverk fyrir kindur fengu slagverksleikarinn Christopher Salvito og píanóleikarinn Nicoletta Favari ásamt Hafdísi þegar þríeykið var á tónleikaferðalagi í Færeyjum. Dagskrána má kynna sér á rvkfringe.is.