Segja má að Bretar hafi verið pönkararnir í Evrópusambandinu; gjarnan tilbúnir að standa uppi í hárinu á Þjóðverjum og Frökkum. Hvaða áhrif mun brotthvarf þeirra úr sambandinu hafa á smærri ESB-ríkin, sem Bretar hafa veitt skjól? Og hvað þýðir Brexit fyrir smáþjóðir utan ESB, eins og Ísland? Þessu reyna Baldur Þórhallsson prófessor og danskur kollegi hans, Anders Wivel, að svara í grein sem birtast mun í nýrri bók um áhrif Brexit. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Brexit er áskorun fyrir hin smærri ríki Evrópu; innan Evrópusambandsins sem utan. Endurskipulagning sambandsins eftir útgöngu Breta er líkleg til að færa Þjóðverjum og Frökkum ennþá meiri völd í hendur og tryggja ítök þeirra í álfunni, undir forystu Þjóðverja. Það gæti átt eftir að draga úr áhrifum hinna smærri ríkja. Enda þótt menn hafi gjarnan hent gaman að Bretum fyrir að vera „fíllinn í postulínsbúðinni“, höfðu mörg smærri ríkjanna hag af því að einhver annar en þau