Rafn Ólafsson fæddist í Reykjavík 7. maí 1937. Hann lést á gjörgæsludeild LSH 25. janúar 2019.

Foreldrar hans voru Ólafur K. Ólafsson, f. 24. júlí 1914, d. 27. júlí 1995, og María Guðmundsdóttir, f. 7. október 1915, d. 1. nóvember 1957

Uppeldisforeldrar Rafns voru Skarphéðinn Sigurðsson, f. 25. mars 1891, d. 23. júní 1962, og Sigríður Einarsdóttir, f. 13. janúar 1899, d. 27. júní 1971.

Bróðir Rafns er Birgir, f. 1939, látinn, uppeldissystkini hans eru Einar Skarphéðinsson, f. 1927, látinn, og Ragnheiður Skarphéðinsdóttir, f. 1931.

Rafn kvæntist hinn 30. nóvember 1963 eftirlifandi eiginkonu sinni, Hrafnhildi Lillu Guðmundsdóttur frá Gröf, f. 24. ágúst 1942. Börn þeirra eru: 1) Kristbjörn, f. 1959, giftur Guðrúnu Pálsdóttur, sem lést 2015, þau eiga Agnesi Ýri, Örnu Rún og Helga Rafn og fjögur barnabörn. Sambýliskona Kristbjörns er Oddný Gréta Eyjólfsdóttir. 2) Bárður, f. 1960, giftur

...