Hilmar Gunnlaugsson fæddist 19. ágúst 1933 í Haukholtum í Hrunamannahreppi. Hann lést 30. janúar 2019 á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð.

Foreldrar hans voru Gunnlaugur Jósefsson, f. 12. október 1896, d. 19. desember 1981, og Þóra Loftsdóttir, f. 16. september 1904, d. 10. maí 1986. Systkini hans voru Kristín, f. 22. apríl 1928, d. 26. ágúst 2012, Hulda, f. 15. desember 1929, d. 23. maí 2008, Loftur Haukur, f. 2. ágúst 1931, d. 27. september 1988, og Gylfi, f. 22. desember 1944. Hilmar kvæntist Málfríði Þórðardóttur, f. 15. nóvember 1933, d. 16. september 2014. Dætur þeirra eru: 1) Marta Þórunn, f. 12. ágúst 1966, maki hennar er Vermundur Ágúst Þórðarson, f. 1964. Dætur þeirra eru Fríða Dís og Dagný. 2) Hildur María, f. 19. september 1975, maki hennar er Þórarinn Þorfinnsson, f. 1969, Börn þeirra eru Þórhildur Lilja, Þorfinnur Freyr og Vigdís Fjóla. Fyrir átti Þórarinn Helgu og Áslaugu Öldu. Fyrir átti Málfríður tvo syni; Guðmund Hauksson, f. 30. september

...