ÁTVR seldi áfengi og tóbak auk sölu umbúða fyrir tæpa 35,3 milljarða kr. í fyrra og nam hagnaður ársins um 1.111 milljónum króna. Það er nokkru minni hagnaður en á árinu á undan þegar hann var 1.367 milljónir kr. Heildarveltan á síðasta ári var rúmlega 45 milljarðar.

Ríkissjóður naut góðs af starfseminni í auknum tekjum af áfengis- og tóbaksgjöldum, arðgreiðslu og virðisaukaskatti. Alls fékk ríkið í sinn hlut rúmlega 25,1 milljarð af brúttósölu ÁTVR í fyrra. Þar af fékk ríkissjóður einn milljarð kr. í arð.

Þessar upplýsingar koma fram í nýútkominni ársskýrslu ÁTVR. Eins og fram hefur komið seldust tæpar 22 milljónir lítra af áfengi í Vínbúðunum í fyrra sem er örlítil aukning frá 2017. En aðsóknin hefur sjaldan eða aldrei verið meiri; viðskiptavinirnir voru rúmlega fimm milljónir talsins yfir árið. ÁTVR rekur 51 áfengisverslun auk vefverslunar og þar var í nógu að snúast. ,,Þegar mest var að gera komu 611 viðskiptavinir í

...