Ragna Matthíasdóttir fæddist 24. september 1962. Hún lést 4. maí 2019.

Útför Rögnu fór fram 15. maí 2019.

Ekkert er sárara en þögninsvefnvana nátthlustun

þegar við bíðum hins eina svarssvarsins sem aldrei kemur.

(Þ.V.)

Í dag kveðjum við kæra mágkonu mína, Rögnu Matthíasdóttur, hinstu kveðju. Ragna var langyngst mágkvenna minna sem ég eignaðist þegar ég fór að búa með Bjarna mínum fyrir rúmlega 20 árum. Framan af hittumst við Ragna sjaldan, helst ef hún kom austur á Síðu.

Bjarni hennar var sjómaður, langdvölum í burtu og tækifærin fá til að hitta þau tvö saman. Hún deildi einkalífi sínu lítt með fjölskyldunni, en þau Bjarni hennar undu sér best ein, í húsinu og garðinum sínum, á rjúpnaveiðum til fjalla eða með félögum sínum í keilunni.

Eftir að við Bjarni minn fórum að leggja

...