Ingibjörg Björnsdóttir fæddist 27. júlí 1961 á Sauðárkróki. Hún lést 2. júlí 2019 á Sct. Maria Hospice-sjúkrahúsinu í Vejle í Danmörku eftir stutta en snarpa baráttu við krabbamein.
Móðir Ingibjargar er Guðrún Magnúsdóttir, f. 1942. Frá árinu 1978 var Ingibjörg skrifuð Björnsdóttir. Ingibjörg á fimm hálfsystkini, öll sammæðra. Þau eru: Björn, Snorri, Svanhvít, María og Anna Lára, öll búsett í Svíþjóð ásamt móður sinni, nema Snorri.
Sumarið 1979, fyrir réttum fjórum áratugum, kynntist Ingibjörg mannsefni sínu, Sigurgeiri Skírnissyni frá Borgum í Hornafirði, f. 1957. Vorið eftir fluttu þau til Gautaborgar í Svíþjóð og þar giftu þau sig þá um sumarið. Í Gautaborg dvöldu þau við störf og nám fram til ársins 1989, en þá flutti fjölskyldan heim til Íslands til nokkurra ára. Fljótlega var heimdraganum þó hleypt að nýju því 1994 lá leiðin til Kolding í Danmörku þar sem hjónin hafa verið búsett allar götur síðan. Þar beið eiginmannsins það
...