Hólmfríður Sigurbjörg Gunnlaugsdóttir fæddist 13. mars 1925 á Vopnafirði. Hún lést 1. júlí 2019.

Foreldrar hennar voru Gunnlaugur Sigvaldason bóksali á Vopnafirði, f. 12.1. 1884, d. 24. 12. 1954, og Margrét Soffía Grímsdóttir, f. 5.9. 1883, d. 20.6. 1943. Systkini Hólmfríðar voru Guðrún Sigurbjörg, f. 1915, d. 1920, og Gunnar, f. 1921, d. 1963.

Þann 2. júní 1951 giftist Hólmfríður Óskari Gissurarsyni rafvirkja frá Litlu-Hildisey í Landeyjum, f. 24.6. 1923, d. 3.11. 1990. Börn Hólmfríðar og Óskars eru 1) Margrét, skrifstofustjóri hjá Vita-Golf, f. 1951, eiginmaður hennar er Steinar Þór Guðlaugsson jarðeðlisfræðingur. Börn þeirra eru a) Hrafn hagfræðingur, eiginkona hans er Kristín Gunnarsdóttir kennari og synir þeirra Steinar Helgi og Bergþór, b) Ása tölvunar- og heilbrigðisverkfræðingur. 2) Gylfi barnahjartalæknir á Barnaspítala Hringsins, f. 1961, eiginkona hans er Guðrún Sigmundsdóttir yfirlæknir hjá Sóttvarnalækni. Börn þeirra eru

...