Þann 22. mars 2018 fór Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar í ræðustól Alþingis. Þar spurði hann Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins ákveðinna spurninga varðandi raforkumarkaðsmál. Umræðuna í heild má sjá, heyra og lesa á vef þingsins (https://www.althingi.is/altext/upptokur/lidur/?lidur=lid20180322T110202)
Þorsteinn kallaði eftir svörum um það, hvort Sjálfstæðisflokkurinn styddi ekki innleiðingu á reglugerð um sameiginlega evrópska eftirlitsstofnun með raforkumarkaði, þ. e. hluta þess sem í dag er kallað orkupakki 3. Tilefnið var að þarna nokkrum dögum fyrr hafði Sjálfstæðisflokkurinn haldið landsfund sinn. Slíkir fundir flokksins eru stefnumótandi og þeir fara með æðsta vald í málefnum hans. Á þessum landsfundi 2018 var gerð eftirfarandi samþykkt: Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frekara framsali á yfirráðum yfir íslenskum orkumarkaði til stofnana Evrópusambandsins.
Bjarni Benediktsson brást
...