Matarháíðin Food&fun verður haldin í 19. sinn á veitingastöðum Reykjavíkur dagana 4.-8. mars næstkomandi. Fjöldi erlendra matreiðslumanna mun starfa við hlið íslenskra kollega sinna þessa helgi auk þess að keppa um titilinn besti kokkur hátíðarinnar. Í fyrra voru gestakokkarnir rúmlega 20 talsins.
Á síðasta fundi borgarráðs var samþykkt samkomulag borgarinnar við Main Course ehf. þess efnis að borgin styrki hátíðina um 2,5 milljónir á þessu og næsta ári, eða alls um fimm milljónir. Þessa peninga á m.a. að nota til að standa straum af kostnaði við að kynna hátíðina.
Fulltrúar meirihlutaflokkanna í borgarráði bókuðu að matarhátíðin hefði farið fram í Reykjavík um árabil. Gestir á hverju ári væru um 12.000-15.000 af öllu þjóðerni. „Borgin hefur nær alltaf styrkt hátíðina enda er hún ein þeirra hátíða sem laða að gesti og íbúa inn á veitingastaði borgarinnar. Matarmenning í Reykjavík hefur tekið stórstígum breytingum á undanförnum
...