Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Kröfur gesta sem til okkar koma verða sífellt meiri. Okkur er metnaðarmál að mæta þeim en einnig að leiða þróunina í því sem koma skal. Hleðsla fyrir rafbíla er líka eitt af því sem ferðaþjónustan í landinu þarf að geta boðið gestum sínum,“ segir Sveinn Heiðar Jensson, hótelstjóri á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri. Þar var í vikunni sett upp og tengd rafhleðslustöð sem tveir bílar í einu geta tengst. Hleðslan tekur fjórar klukkustundir og geta gestir hótelsins þá til dæmis sett bílinn í samband að kvöldi og tekið hann fullhlaðinn að morgni.

Galdur að leiða þróun

Í Vík í Mýrdal og á Kirkjubæjarlaustri eru hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla. Mikilvægt var hins vegar að bæta aðgengi að rafhleðslum við hótel, segir Sveinn Heiðar. Þegar auglýst var eftir umsóknum úr Orkusjóði vegna innviðaverkefna sendu forsvarsmenn Hótels Klausturs umsókn

...