Kraftur Snjódrífurnar ásamt fulltrúum félaganna Lífs og Krafts.
Kraftur Snjódrífurnar ásamt fulltrúum félaganna Lífs og Krafts. — Ljósmynd/Kraftur

Sirrý Ágústsdóttir og Snjódrífurnar afhentu fulltrúum styrktarfélaganna Lífs og Krafts afrakstur söfnunar Lífskrafts, samtals sex milljónir króna, á Kjarvalsstöðum í gær.

Í byrjun sumars gengu þær 165 km leið yfir Vatnajökul og söfnuðu áheitum fyrir félögin Kraft, félag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, og Líf, styrktarfélag kvennadeildar Landspítalans.

Sirrý Ágústsdóttir, upphafskona átaksins, greindist með leghálskrabbamein 2010 og aftur 2015. Í síðara skiptið var ljóst að krabbameinið var krónískt og töldu læknar að hún ætti eitt til þrjú ár eftir ólifað. Sirrý ákvað að fagna þessum tímamótum með því að ganga yfir Vatnajökul ásamt útivistarvinkonum sínum og á sama tíma hvetja konur um land allt til að ganga og taka þátt í Lífskraftsgöngu.

Snjódrífurnar skipa, auk Sirrýjar, leiðangursstjórarnir Vilborg Arna Gissurardóttir pól- og Everestfari og Brynhildur Ólafsdóttir Landvættaþjálfari

...