Formaður Viðreisnar ofbýður Páli Vilhjálmssyni með frumlegum útleggingum á hag- og fjármálafræðum:
Íslenska krónan ber ábyrgð á kreppunni vegna Kínaveirunnar, segir formaður Viðreisnar efnislega. Í Evrópu er engin verðbólga eins og hér á Íslandi, kemur úr koki Tobbu Kötu.
Formaðurinn veit ekki, eða þykist ekki vita, að Evrópu glímir við verðhjöðnun, sem er margfalt verri en verðbólga.
Allir sem eitthvað kunna í hagfræði, lögverndaðir eða ekki, vita þetta. Tobba Kata kann ekki hagfræði og heldur ekki einföldustu atriði um áhrif Kínaveirunnar á eftirspurn í ferðaþjónustu – sem kemur krónunni nákvæmlega ekkert við.
En Tobba Kata kann að spila golf, ójá, enda hvorki verðbólga né verðhjöðnun á vellinum í Hveragerði. Ónei, sei, sei.“
En Páll má ekki gleyma því að formaðurinn kann einnig sitt hvað fyrir sér í persónulegum fjármálafræðum. Þá var viðmiðunin höfð í kringum milljarðinn,
...