Fjölskyldubingó mbl.is verður á sínum stað á fimmtudagskvöldið þar sem þau Siggi Gunnars og Eva Ruza sjá til þess að færa fjölskyldum landsins bingótölurnar beint heim í stofu.
Í síðustu viku mætti Páll Óskar Hjálmtýsson og tók lagið fyrir þátttakendur fjölskyldubingósins en þá var haldinn sérstakur páskaþáttur.
Í kvöld mætir söngvarinn Jón Jósep Snæbjörnsson, betur þekktur sem Jónsi, í bingósettið og heldur uppi stuðinu fyrir þátttakendur.
Ásamt þeim Sigga og Evu verður furðu-DJ-inn í setti, tóm gleði og fullt af stórglæsilegum vinningum.
Allar upplýsingar um þátttöku og útsendingu má finna með því að fara inn á heimasíðu bingósins á www.mbl.is/bingo.
Allar fyrirspurnir vegna bingósins er hægt að senda á bingo@mbl.is.