Á gjörgæslu Lækkun talna um lífslíkur er rakin til veirufaraldursins.
Á gjörgæslu Lækkun talna um lífslíkur er rakin til veirufaraldursins. — AFP

Lífslíkur við fæðingu íbúa í mörgum Evrópulöndum ýmist stóðu í stað eða minnkuðu á seinasta ári frá árunum á undan, sem talið er að megi að stórum hluta rekja til faraldurs kórónuveirunnar. Hér á landi minnkuðu lífslíkur örlítið í fyrra frá árinu á undan eða um 0,1 ár samkvæmt tölum sem Eurostat, hagstofa ESB, hefur birt.

Að jafnaði hafa lífslíkur íbúa í Evrópu aukist jafnt og þétt á umliðnum áratugum eða um tvö ár á hverjum áratug allt frá 1960. Í umfjöllun Eurostat segir að eftir að faraldurinn braust út á seinasta ári drógust lífslíkur íbúa saman í meirihluta þeirra aðildarlanda Evrópusambandsins þar sem tölur um meðalævilengd og lífslíkur liggja fyrir. Mesta breytingin á einu ári var á Spáni þar sem lífslíkur minnkuðu um 1,6 ár í fyrra, um 1,5 ár í Búlgaríu og um 1,4 ár í Litháen, Póllandi og Rúmeníu.

Minnkandi lífslíkur eiga þó ekki við um öll lönd því lífslíkur jukust um 0,3 ár í Noregi og um 0,1 ár í Danmörku og Finnlandi í

...