Trillur Halldór telur ólíklegt að nokkur muni fara á grásleppu á Þórshöfn.
Trillur Halldór telur ólíklegt að nokkur muni fara á grásleppu á Þórshöfn. — Morgunblaðið/Líney

Karítas Ríkharðsdóttir

karitas@mbl.is

„Þetta verð sem er verið að bjóða er allt of lágt. Skelfilegt hvað það hefur lækkað frá því að það var 330 krónur á kílóið á vertíðinni 2019,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, í samtali við 200 mílur um stöðu grásleppuveiða í ár.

Verðið fyrir kílóið af landaðri, óskorinni grásleppu var 225 krónur í fyrra en verðið sem býðst í ár er um 130 krónur. Þá eru veiðiheimildir fyrir hrognkelsum meiri í ár en þær hafa nokkurn tímann verið og hefur veiðidögum á hvert leyfi nú verið fjölgað úr 25 í 40.

Leyfilegt að skera hveljuna

Í ár var sú breyting gerð á reglugerð um nýtingu afla og aukaafurða að heimilt er að varpa hvelju af grásleppu fyrir borð. Þetta er gert til að koma til móts við stöðu á mörkuðum en ekki hefur gengið að selja hveljuna frá því að heimsfaraldur hófst.

...