Vogabyggð „Sérnotafletir skulu að lágmarki hafa 50% gróðurþekju og a.m.k. einn berjarunna,“ segir í skilmálum.
Vogabyggð „Sérnotafletir skulu að lágmarki hafa 50% gróðurþekju og a.m.k. einn berjarunna,“ segir í skilmálum. — Morgunblaðið/Ómar

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Fyrirtækið ÞG íbúðir ehf., sem selur íbúðir í hinu nýja hverfi Vogabyggð, hefur ritað skipulagsfulltrúa Reykjavíkur bréf með ósk um að felld verði niður kvöð í skipulagi um gróðurþekjur og berjarunna innan sérafnotareita/einkagarða íbúða.

ÞG íbúðir eru lóðarhafi að Kuggavogi 2-14, Arkarvogi 2-15 og Skektuvogi 2-8 í Vogabyggð og seljandi íbúða á þessum lóðum. ÞG verktakar byggja íbúðarhúsin.

Í bréfi forstjórans, Þorvaldar Gissurarsonar, til skipulagfulltrúa kemur fram að í deiliskipulagi sé þess krafist að sérnotafletir skuli að lágmarki hafa 50% gróðurþekju og a.m.k. einn berjarunna.

„Það er mat lóðarhafa og byggingaraðila að hér sé um óeðlilegar kröfur að ræða sem eru hindrandi og til óþurftar fyrir íbúðaeigendur og rýri auk þess gæði íbúða og möguleika íbúðaeigenda til að hámarka nýtingu sinna eigna,“ segir Þorvaldur m.a. í bréfinu.

...