Komin er á markað ný og spennandi vara úr íslensku lambakjöti sem fyrirtækið Pure Arctic hefur þróað í samstarfi við Íslenskt lambakjöt. Um er að ræða rifið lambakjöt eða pulled lamb eins og það kallast á ensku. Notaðir eru úrvals lambabógar sem eru hægeldaðir og kryddaðir eftir kúnstarinnar reglum. Varan kemur fullelduð í handhægum umbúðum sem henta sérstaklega vel í rétti á borð við hamborgara og samlokur, en rifið svínakjöt hefur verið sérlega vinsælt um heim allan og því má ætla að viðtökurnar á lambakjötinu verði góðar.

Rifna lambið er fáanlegt í Hagkaupum, Krónunni og Fjarðarkaupum.