Perlan Eldgosið sést nú vel frá helstu útsýnisstöðum Reykjavíkur.
Perlan Eldgosið sést nú vel frá helstu útsýnisstöðum Reykjavíkur. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Freyr Bjarnason

Guðni Einarsson

Skúli Halldórsson

Til skoðunar er að stækka hið svonefnda hættusvæði í kringum eldgosið í Geldingadölum og munu helstu viðbragðsaðilar funda í dag kl. 9 til þess að ákveða næstu skref. Vísindamenn Veðurstofu Íslands hafa reiknað út hversu hratt og langt hraunsletturnar sem nú berast upp úr gígnum geta farið, en þær eru á bilinu 5-15 cm að þvermáli, og nær gosstrókurinn nú allt að 300 metra hæð. Sendu þeir frá sér tillögu á sunnudaginn um að miðað verði við 500 metra radíus frá gosinu.

Kvikustrókahraun í fyrsta sinn

Stöðugt hefur brotnað úr barmi gígsins sem nú gýs í Geldingadölum. Um helgina fór töluvert af kvikustrókunum út um eitt skarðið og myndaði í fyrsta sinn í eldgosinu kvikustrókahraun sem rann niður hlíðina. Mestu kvikustrókahraun sem þekkt eru á Íslandi eru í Kverkfjöllum. Þá þeyttu kvikustrókar...