Metnaður Nýja lúxushótelinu er ætlað að setja ný viðmið í gæðum í hótelgistingu á Íslandi.
Metnaður Nýja lúxushótelinu er ætlað að setja ný viðmið í gæðum í hótelgistingu á Íslandi. — Morgunblaðið/Eggert

Lúxushótelið við Hörpu, The Reykjavík Edition, tók á móti fyrstu gestunum í fyrradag. Edition-hótelin eru rekin í samstarfi við hótelrisann Marriott.

Ninna Hafliðadóttir, markaðs- og upplýsingafulltrúi hótelsins, segir 106 af 253 herbergjum hafa verið tekin í notkun í fyrsta áfanga. Þessi herbergi séu á 2. og 3. hæð hússins. Síðar verði tekin í notkun herbergi á 4., 5. og 6. hæð hótelsins. Þá hafi veitingahús á jarðhæð hótelsins verið tekið í notkun. Hins vegar eigi eftir að taka næturklúbb og aðra þjónustu í notkun.

Ekki leyfi fyrir myndatöku

Hvorki var veitt heimild til að skoða nýja hótelið að innan né heldur var ljósmyndara heimilað að taka myndir.

Ástæðan er sú, að sögn Ninnu, að eigendur hótelsins vilja velja rétta tímann til að bjóða fjölmiðla velkomna og þá með leiðsögn í næstu viku. Þá í því skyni að umfjöllunin muni endurspegla sem best upplifun

...