— Morgunblaðið/Eggert

Þessir ungu íshokkíspilarar böðuðu sig í sólargeislum á ísilagðri Reykjavíkurtjörn í gær. Gluggaveður hefur leikið við íbúa Reykjavíkur að undanförnu en sólskinsstundir hafa verið ófáar og úrkoma lítil sem engin. Vetur konungur er þó enn ríkjandi og frost er á landinu öllu. Trausti Jónsson veðurfræðingur segir sólskinsstundir í fyrri hluta mars ekki hafa verið fleiri síðan 1962 og 1947 þar á undan. » 6