Sauðárkróksbakarí opnaði afgreiðslu sína aftur í gæmorgun, eftir um tíu daga stopp. Eldsnemma að morgni 14. þessa mánaðar var Snorri Stefánsson, eigandi bakarísins, einn við vinnu þegar rólegu umhverfi hans var raskað hastarlega er bíl var ekið inn…
Bakari Snorri Stefánsson í afgreiðslu Sauðárkróksbakarís í gær, sem opnað hefur verið til bráðabirgða.
Bakari Snorri Stefánsson í afgreiðslu Sauðárkróksbakarís í gær, sem opnað hefur verið til bráðabirgða. — Morgunblaðið/Björn Björnsson

Björn Björnsson

Sauðárkróki

Sauðárkróksbakarí opnaði afgreiðslu sína aftur í gæmorgun, eftir um tíu daga stopp.

Eldsnemma að morgni 14. þessa mánaðar var Snorri Stefánsson, eigandi bakarísins, einn við vinnu þegar rólegu umhverfi hans var raskað hastarlega er bíl var ekið inn um suðurvegg fyrirtækisins og inn í miðja afgreiðslu.

Snorri, sem keypt hafði bakaríið og fengið það afhent 1. september á síðasta ári, stóð nú frammi fyrir gjörónýtu afgreiðslurými og feiknatjóni. Hann segir að þegar orðið var ljóst hvernig komið var hafi hann tekið sér dag í að skoða málið og gera upp við sig hvernig mætti bregðast við.

Ómetanlegur stuðningur

Í stuttu máli má

...