Jónína Margrét Ólafsdóttir fæddist 24. september 1943 í Keflavík. Hún lést 7. október 2018 eftir löng veikindi.

Foreldrar hennar voru Margrét Guðmundsdóttir, f. 18.11. 1909, d. 16.9. 1973, og Ólafur Gíslason, f. 25.7. 1904, d. 5.3. 1989. Systkini hennar eru Guðmunda Bjarný Ólafsdóttir, f. 20.2. 1938, d. 10.3. 2009, Gísli Grétar Ólafsson, f. 1.10. 1939, d. 1.2. 2013, og Sigríður Svanhvít Ólafsdóttir, f. 21.10. 1949.

Jónína giftist David F. Scott, leikara og rithöfundi, í Lundúnum árið 1969 en þau skildu 1978. Þau eignuðust eina dóttur saman; Sonju Margréti Scott, f. 27.4. 1972. Maki Sonju er Axel Einar Guðnason, f. 4.5. 1970, og börn þeirra eru Felix Guðni, f. 6.7. 1998, Lára, f. 3.9. 2002, og Alexía Margrét, f. 18.7. 2004.

Jónína ólst upp í Keflavík til 16 ára aldurs og fékk snemma áhuga á leiklist. Hún nam við Leiklistarskóla Reykjavíkur frá 1960 til 1963 og flutti til Lundúna árið 1964 og stundaði leiklistarnám

...