Tesla Búið er að stofna fyrirtækið Tesla Motors Iceland hér á landi.
Tesla Búið er að stofna fyrirtækið Tesla Motors Iceland hér á landi. — AFP

Þann 25. janúar var fyrirtækið Tesla Motors Iceland ehf. stofnað og er fyrirtækið með lögheimili í Efstaleiti 5. Þar er Lögmannsstofan Logos með aðsetur en hún annaðist stofnun félagsins. David Jon Feinstein er skráður stjórnarformaður fyrirtækisins, en hann er titlaður framkvæmdastjóri alþjóðaviðskipta og nýrra markaða hjá Tesla. Í ÍSAT atvinnugreinaflokkun RSK er starfsemi fyrirtækisins flokkuð sem bílasala.

Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá Tesla um fyrirhugaða opnun starfsstöðvar hér á landi. Til svara varð fulltrúi Tesla í Noregi, Even Sandvold Roland. Staðfesti hann að Tesla vinni að opnun hér á landi en bætti hann við að nánari upplýsinga um þau umsvif yrði að vænta innan skamms.

Vildi flýta ferlinu

Feinstein er einnig skráður stjórnarmaður í nýstofnuðu fyrirtæki Tesla í Póllandi en það var skráð þar í upphafi þessa árs, að því er fram kemur á pólsku...