Landvernd, Eldvötn, Fjöregg, Fuglavernd, Náttúruverndarsamtök Austurlands, Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands og Ungir umhverfissinnar hafa kvartað til eftirlitsnefndar Árósasamningsins vegna breytinga á lögum um fiskeldi sem brjóta gegn ákvæðum samningsins.
Í byrjun október á síðasta ári breytti Alþingi lögum um fiskeldi með frumvarpi sem samþykkt var samdægurs, segir í tilkynningu Landverndar, og að umræður hafi verið takmarkaðar.
Með frumvarpinu var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimilað að gefa út bráðabirgðarekstrarleyfi til fiskeldisfyrirtækja. Þann 5. nóvember síðastliðinn gaf ráðherrann út tvö slík bráðabirgðaleyfi.
Umhverfisverndarsamtökin sjö sem kvarta telja að við lagasetninguna og við útgáfu leyfa á grundvelli hennar hafi stjórnvöld brotið gegn skuldbindingum Íslands samkvæmt Árósasamningnum. Þannig sé við leyfisveitingu til bráðabirgða, til allt að 20 mánaða, ekki gert ráð fyrir
...