— Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Kvikmyndatökufólk og þekktir leikarar hafa verið áberandi í og við Húsavík sl. daga þar sem atriði í Eurovision-kvikmynd bandaríska leikarans Wills Ferrels voru tekin upp. Leikarinn Pierce Brosnan var í hópi þeirra sem staddir voru á Húsavík vegna kvikmyndarinnar og kom hann hingað til lands ásamt eiginkonu sinni Keely Shaye-Smith. Fjöldi íslenskra leikara fer einnig með hlutverk í myndinni. Á meðfylgjandi ljósmynd má sjá er tökur fóru fram úti á Skjálfandaflóa í fremur köldu en fallegu veðri en samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins lauk tökunum í gærkvöldi.