Eftir Valdimar Inga Gunnarsson: „Framin hafa verið alvarleg stjórnsýslubrot þar sem stærstu laxeldisfyrirtæki Íslands höfðu mikla aðkomu að breytingu nýgerðra fiskeldislaga.“
Valdimar Ingi Gunnarsson
Valdimar Ingi Gunnarsson

Undirritaður mun sýna fram á í nokkrum greinum að framin hafa verið alvarleg stjórnsýslubrot þar sem stærstu laxeldisfyrirtæki Íslands höfðu mikla aðkomu að breytingu nýgerðra fiskeldislaga.

Síðastliðið vor var öllum alþingismönnum sent bréf þar sem m.a. var vakin athygli á vinnubrögðum starfshóps sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi. Starfshópurinn skilaði skýrslu 23. ágúst 2017. Þær breytingar sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor að gera á lögum nr. 71/2008 um fiskeldi byggðust að mestu leyti á skýrslu starfshópsins. Undirritaður gerði alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð fyrrnefnds starfshóps og vakti athygli á því að þau kynnu í ákv. tilvikum að fara gegn ákvæðum stjórnsýslulaga.

Ferlið fram að þessu

Það hafa verið reyndar ýmsar leiðir til að ná framgangi í málið:

1. Hinn 29. mars 2019 voru sendar athugasemdir til Alþingi

...