Eftir Kristján Sigurðsson: „Framganga Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra hefur verið afar umdeild á síðasta kjörtímabili.“
Kristján Sigurðsson
Kristján Sigurðsson

Konur eru nú tæp 40% þingmanna og 45% ráðherra. Þær eru nú í æ ríkara mæli í fyrstu sætum í forvali og prófkjöri flokkanna, sem bendir til þess að konur verði mögulega í meirihluta þingmanna á næsta þingi. Það ber vissulega að fagna slíkri þróun ef satt reynist að konur hafi meira hyggjuvit en karlar samanber hinar oft tilnefndu „hagsýnu húsmæður“.

Þótt flestir telji að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi komist vel frá sínu starfi þá er staðreynd að sumar aðrar konur í ríkisstjórn hennar hafa lent undir smásjá fjölmiðla vegna aðgerða sinna í málum sem aðallega tengjast dóms-, mennta- og heilbrigðismálum.

Greinarhöfundur starfaði í áratugi innan heilbrigðisþjónustunnar og hefur fylgst með afar umdeildri framgöngu Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra á síðasta kjörtímabili. Má þar nefna aðför að starfsemi sjálfstætt starfandi lækna, deilur um fjármögnun hjúkrunarheimila, vistun biðlista sjúklinga í liðskiptaaðgerðir

...