
Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir
Í lok apríl samþykkti Evrópusambandið nýja reglugerð á sviði rafrænna auðkenninga og traustþjónustu, svokallaða eIDAS-2-reglugerð nr. 2024/1183. Reglugerðin breytir gildandi reglugerð frá árinu 2014, þ.e. eIDAS-1, sem kvað á um lagalegan ramma fyrir rafræna auðkenningu og traustþjónustur, t.d. rafrænar undirskriftir.
Hin nýja reglugerð útvíkkar og styrkir fyrri löggjöf til muna. Hún kynnir til leiks hið evrópska stafræna auðkenningarveski sem veitir öllum ESB-íbúum öruggt, samhæft og notendastýrt stafrænt auðkenni. Veskið gerir íbúum kleift að geyma persónuupplýsingar sínar, s.s. opinber gögn, læknisvottorð, fjárhagsupplýsingar o.fl., í þeim tilgangi að þeir sjálfir hafi stjórn á þeim og geti deilt þeim eftir því sem við á með öruggum hætti. Umrætt veski er skyldubundið, þarf að byggjast á samræmdum
...