Mikið sést af rjúpu þetta vorið á Norðausturlandi og segjast heimamenn, sem Morgunblaðið hefur rætt við, ekki muna eftir öðru eins. Ólafur Karl Nielsen líffræðingur, sem nú er við rjúpnatalningar á þeim slóðum, staðfestir að mikið sé af rjúpu og…
— Ljósmynd/Pétur Alan Guðmundson

Ólafur E. Jóhannsson

oej@mbl.is

Mikið sést af rjúpu þetta vorið á Norðausturlandi og segjast heimamenn, sem Morgunblaðið hefur rætt við, ekki muna eftir öðru eins. Ólafur Karl Nielsen líffræðingur, sem nú er við rjúpnatalningar á þeim slóðum, staðfestir að mikið sé af rjúpu og fljótt á litið geti rjúpnafjöldinn verið á pari við þau ár þegar mest var af fugli á þessum slóðum sem var árin 1966 og 1986.

„Hér er mikið af rjúpu og mun meira en áður hefur sést, en það er ekkert af fálka. Það er rjúpnakarri á nánast hverri þúfu,“ segir Reimar Sigurjónsson á Felli í Bakkafirði í samtali við Morgunblaðið og segir að heimamenn telji að fálka hafi fækkað mjög vegna fuglaflensunnar sem á hann hefur herjað. Fálki er helsti afræningi rjúpu og fækkun hans þýðir að fleiri rjúpur halda lífi.

...