
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Halldór Gunnar Ólafsson oddviti á Skagaströnd var kynntur sem nýr formaður stjórnar Byggðastofnunar á ársfundi hennar á Breiðdalsvík í vikunni. Varaformaður er Vigfús Þórarinn Ásbjörnsson á Höfn í Hornafirði. Önnur í stjórn verða Steindór Runiberg Haraldsson á Skagaströnd, Ingunn Heiða Ingimarsdóttir á Egilsstöðum, Haraldur Benediktsson á Akranesi, Heiðbrá Ólafsdóttir úr Landeyjum og Margrét Sanders úr Reykjanesbæ.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipar stjórn Byggðastofnunar og í ávarpi sem hann flutti á ársfundinum vitnaði hann til minnisblaðs frá stofnuninni, þar sem varað er við hugmyndum hagræðingarhóps stjórnvalda um að allar minni stofnanir verði sameinaðar öðrum. Mörg rök falli gegn því. Bendir ráðherra þar á að fá byggðarlög utan vinnusóknarsvæðis Reykjavíkur geti mannað stofnanir með fleiri en 50 starfmönnum.
„Ég mun leggja mitt
...