Eigendur húss við Fjólugötu í Reykjavík hafa fengið synjun við þeirri ósk að fá að útbúa bílastæði á lóð sinni. Skipulagsfulltrúi borgarinnar hafði tekið neikvætt í erindið og skaut húseigandinn þeirri ákvörðun til umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar

Fjólugata Hér má sjá eitt af fjölmörgum bílastæðum sem eru við götuna.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Eigendur húss við Fjólugötu í Reykjavík hafa fengið synjun við þeirri ósk að fá að útbúa bílastæði á lóð sinni.
Skipulagsfulltrúi borgarinnar hafði tekið neikvætt í erindið og skaut húseigandinn þeirri ákvörðun til umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar.
Á fundi ráðsins 30. apríl sl. var niðurstaða skipulagsfulltrúa staðfest með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Pírata, Sósíalista og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins og einu atkvæði Framsóknarflokksins.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins töldu í bókun rétt að heimila viðkomandi húseigendum að leggja bifreiðastæði á lóð sinni, líkt og fjölmörg fordæmi eru fyrir í götunni og öðrum
...