Herborg Pálsdóttir er tilnefnd til embættis stórsírs Oddfellowreglunnar á Íslandi. Er þetta í fyrsta skipti sem kona er í framboði til þess embættis. Steindór Gunnlaugsson, núverandi varastórsír, er einnig tilnefndur
Herborg Pálsdóttir
Herborg Pálsdóttir

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Herborg Pálsdóttir er tilnefnd til embættis stórsírs Oddfellowreglunnar á Íslandi. Er þetta í fyrsta skipti sem kona er í framboði til þess embættis. Steindór Gunnlaugsson, núverandi varastórsír, er einnig tilnefndur.

Stórstúkuþing Oddfellowreglunnar var sett á Natura-Berjaya-hóteli í gær og lætur Guðmundur Eiríksson þar af embætti stórsírs, sem hann hefur gegnt undanfarin átta ár.

Einkunnarorð Oddfellowreglunnar eru vinátta, kærleikur og sannleikur. Í lokahugleiðingu sinni í Oddfellowblaðinu fer Guðmundur nokkrum orðum um vináttuna: „Ég hef líka bent á þau góðu sannindi sem felast í eftirfarandi orðum um vináttuna. En orðið vinátta er jú fyrsta orðið af þremur í einkunnarorðum okkar í Reglunni. Hún er ágæt í

...