
Ráðast á í byggingu öryggisfangelsis á Stóra-Hrauni og verður það fyrsta fangelsið sem er sérstaklega hannað og byggt sem öryggisfangelsi á Íslandi. Ríkisstjórnin samþykkti byggingu fangelsisins á fundi í síðustu viku en Stjórnarráðið sendi út tilkynningu þess efnis í gær.
Með byggingu þess verður hægt að tryggja nauðsynleg öryggisskilyrði og bætta aðstöðu fyrir fanga og starfsfólk. Í fyrsta áfanga verksins er gert ráð fyrir 84 klefum á Stóra-Hrauni og að þangað til fangelsið verður fullbyggt verði nokkrir klefar á Litla-Hrauni notaðir samhliða. Er því gert ráð fyrir að pláss verði fyrir um 90-98 fanga á hverjum tíma. Þegar fangelsið á Stóra-Hrauni verður fullbyggt er gert ráð fyrir að það geti hýst allt að 128 fanga. Áætlað er að kostnaður við þennan fyrsta og stærsta áfanga verði 17,8 ma. kr. og fellur sá kostnaður undir fjármálaáætlun fyrir árin 2026-2030. Sá hluti framkvæmdanna verður boðinn út á næstunni
Fangelsinu á Stóra-Hrauni verður skipt í öryggisstig
...