„Þolinmæði er mikilvæg dygð við fuglamyndatökur og eins að fara á vettvang án allra væntinga. Besta myndin kemur oft óvænt og andartakið er dýrmætt,“ segir Daníel Bergmann, ljósmyndari og rithöfundur

Höfundur Besta myndin óvænt og andartakið dýrmætt, segir Daníel Bergmann um fuglamyndir sínar.
— Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þolinmæði er mikilvæg dygð við fuglamyndatökur og eins að fara á vettvang án allra væntinga. Besta myndin kemur oft óvænt og andartakið er dýrmætt,“ segir Daníel Bergmann, ljósmyndari og rithöfundur. Hann er höfundur Árbókar Ferðafélags Íslands 2025 sem kom út á dögunum. Bækur þessar eru ritröð sem á sögu allt aftur til ársins 1928; einstakar heimildir um náttúru, land og sögu. Yfirleitt eru einstök landsvæði til umfjöllunar í árbókum FÍ nema hvað bók ársins 1939 fjallaði um fugla á Íslandi, eins og aftur er gert nú. Fuglar og fuglastaðir, er titill bókarinnar nýju sem er 320 blaðsíður; skrifuð af Daníel sem jafnframt tók langflestar myndirnar.
Klifurskríkja og elrigreipur
Alls verpa um 80 fuglategundir á Íslandi og á annan tug eru
...