Í janúar 2012 gerði sérstakur saksóknari samning við fyrirtækið PPP sf. um sérfræðiráðgjöf á sviði rannsókna á tilteknu sakamáli sem embættið hafði þá til rannsóknar. Þetta kemur fram í samningi sem Morgunblaðið hefur undir höndum og Ólafur Þ
Pappírsslóð Yfirheyrsla lögreglunnar yfir sérstökum saksóknara í júlí 2012 og samningur embættisins við njósnafyrirtækið PPP frá upphafi árs 2012.
Pappírsslóð Yfirheyrsla lögreglunnar yfir sérstökum saksóknara í júlí 2012 og samningur embættisins við njósnafyrirtækið PPP frá upphafi árs 2012. — Morgunblaðið/AM

Stefán Einar Stefánsson

ses@mbl.is

Í janúar 2012 gerði sérstakur saksóknari samning við fyrirtækið PPP sf. um sérfræðiráðgjöf á sviði rannsókna á tilteknu sakamáli sem embættið hafði þá til rannsóknar. Þetta kemur fram í samningi sem Morgunblaðið hefur undir höndum og Ólafur Þ. Hauksson héraðssaksóknari staðfestir að hann hafi gert í fyrra embætti.

Samningurinn er undirritaður af Ólafi Þ. Haukssyni, þáverandi sérstökum saksóknara, og eigendum PPP sf., þeim Guðmundi Hauki Gunnarssyni og Jóni Óttari Ólafssyni, sem þá höfðu nýlega látið af störfum hjá embættinu til þess að stofna PPP. Samningurinn er vottaður af starfsmanni sérstaks saksóknara, sem enn er að störfum hjá héraðssaksóknara, eins og embættið heitir nú.

Þeir Jón Óttar og Guðmundur
Haukur,

...