Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari telur sem stendur ekki ástæðu til afsagnar vegna umfangsmikils gagnastuldar frá embætti sérstaks saksóknara meðan það embætti var og hét og hann gegndi því. Hann fullyrðir að rannsóknaraðferðir og gagnaöflun hafi …
Héraðsdómur Ólafur Þór Hauksson í skikkju sérstaks saksóknara árið 2014.
Héraðsdómur Ólafur Þór Hauksson í skikkju sérstaks saksóknara árið 2014. — Morgunblaðið/Þórður

Sólrún Lilja Ragnarsdóttir

solrun@mbl.is

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari telur sem stendur ekki ástæðu til afsagnar vegna umfangsmikils gagnastuldar frá embætti sérstaks saksóknara meðan það embætti var og hét og hann gegndi því. Hann fullyrðir að rannsóknaraðferðir og gagnaöflun hafi alltaf verið innan lagaheimilda og dómsúrskurða hafi verið aflað fyrir öllum hlerunum.

„Það er ekki hægt að fá hlustun framkvæmda nema þú sért með dómsúrskurð. Þetta fer á milli stofnana og þar er skýlaus krafa um dómsúrskurð og það er aldrei sett í framkvæmd hlustun nema dómsúrskurður liggi fyrir,“ segir Ólafur í samtali við Morgunblaðið.

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari fól í gær lögreglustjóranum á Suðurlandi rannsókn á brotum vegna gagnastuldarins eftir að efast

...