
Sameinuðu þjóðirnar hafa helgað þetta ár samvinnuhreyfingum um allan heim undir yfirskriftinni „Samvinna um betri heim“. Þar er horft til jákvæðra samfélagslegra áhrifa samvinnufélaga og hvernig þau hafa leyst margar áskoranir samtímans, einkum á sviði efnahags- og félagsmála.
Samvinnuhreyfingin á Íslandi á rætur að rekja til ársins 1882, þegar Kaupfélag Þingeyinga var stofnað. Á þessum tíma höfðu kjör bænda versnað verulega, einkum vegna hás vöruverðs og einokunar kaupmanna. Bændur vildu tryggja sér betri viðskiptakjör með því að sameinast um vörukaup og sameiginlega sölu afurða. Stofnun félagsins markaði upphaf nýrrar fjöldahreyfingar meðal Íslendinga og innan fárra áratuga spruttu kaupfélög upp víða um land.
Fyrstu kaupfélögin voru hluti af þjóðernisvakningu og sjálfstæðisbaráttu 19. aldar. Fjöldi samvinnufélaga var stofnaður, einkum á
...