Kántrítónlist er vinsælli en margur heldur og tónlistarmaðurinn Axel Ómarsson hefur haldið merkinu hátt á lofti og meðal annars gefið út 39 lög, þar af 26 frumsamin. Hann heldur 60 ára afmælistónleika með hljómsveit sinni í Lindakirkju laugardaginn 31
Kántrítónlist Axel O verður með 60 ára afmælistónleika 31. maí.
Kántrítónlist Axel O verður með 60 ára afmælistónleika 31. maí. — Ljósmynd/Gassi

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

Kántrítónlist er vinsælli en margur heldur og tónlistarmaðurinn Axel Ómarsson hefur haldið merkinu hátt á lofti og meðal annars gefið út 39 lög, þar af 26 frumsamin. Hann heldur 60 ára afmælistónleika með hljómsveit sinni í Lindakirkju laugardaginn 31. maí og hefjast þeir klukkan 20. Sérstakir gestir verða Milo Deering, pedal steel-gítarleikari, og söngkonan Kinsey Rose, sem eru með á nýjustu plötu Axels O, Dallas Sessions – Acoustic Covers, en á henni eru sjö ábreiður af frægum lögum.

Mikill tónlistaráhugi er í fjölskyldu Axels. Hann flutti til Bandaríkjanna þegar hann var 16 ára og bjó þar í tíu ár. „Ég bjó með fjölskyldu minni í Texas og Oklahoma og mótaðist þar, innbyrti þennan kántríáhuga, sem ég tók með mér til Íslands. Ég byrjaði svo að

...