Hópur fyrrverandi leikmanna færeyska knattspyrnufélagsins HB í Þórshöfn dvaldi hér á landi í vikunni, skoðaði sig um og rifjaði upp kynnin við gamla félaga. „Við hittumst alltaf á laugardagsmorgnum og göngum saman, rifjum upp gömlu dagana og…

Sungið saman Gömlu félagarnir úr HB og Skagamenn sungu saman í Íslandsheimsókninni í vikunni.
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Hópur fyrrverandi leikmanna færeyska knattspyrnufélagsins HB í Þórshöfn dvaldi hér á landi í vikunni, skoðaði sig um og rifjaði upp kynnin við gamla félaga.
„Við hittumst alltaf á laugardagsmorgnum og göngum saman, rifjum upp gömlu dagana og segjum stundum lygasögur,“ segir Poul Michelsen leiðtogi hópsins og hlær hjartanlega. Hópurinn, sem nefnir sig Renni- og gongufélagið, hefur haldist í tvo áratugi en auk gönguferðanna reyna félagarnir að fara árlega í lengri ferðir til útlanda og í þetta skipti var Ísland áfangastaðurinn.
„Þetta eru allt strákar sem hafa leikið með HB í Þórshöfn. Ég er áttræður, einn er 81 árs en aðrir eru yngri,“ segir Poul. Þegar Morgunblaðið ræddi við hann var hópurinn
...