Hilmar Snorrason, sem leiddi Slysavarnaskóla sjómanna í yfir 30 ár, var heiðraður fyrir ævistarf sitt á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem sett var á Selfossi í gær. Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður félagsins afhenti Hilmari…
Landsþing Hilmar Snorrason leiddi Slysavarnaskóla sjómanna í yfir 30 ár.
Landsþing Hilmar Snorrason leiddi Slysavarnaskóla sjómanna í yfir 30 ár. — Ljósmynd/Landsbjörg

Hilmar Snorrason, sem leiddi Slysavarnaskóla sjómanna í yfir 30 ár, var heiðraður fyrir ævistarf sitt á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem sett var á Selfossi í gær.

Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir formaður félagsins afhenti Hilmari hluta úr stýri Sæbjargar, skólaskips Landsbjargar, sem sett hefur verið á koparplatta og með fylgdi skjal þar sem segir: „Hér er hluti af stýri Sæbjargar, skólaskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þar stóð í brúnni og stýrði öryggismálum sjófarenda Hilmar Snorrason. Fáir hafa haft jafn mikil áhrif í þá veru að fækka alvarlegum slysum og banaslysum á sjó og Hilmar. Það er ævistarf sem vert er að þakka fyrir. Traustum höndum hefur þú haldið um stjórnvölinn á slysavörnum sjófarenda í rúma þrjá áratugi og þannig stýrt þúsundum sjófarenda heilum í höfn. Hafðu heila þökk fyrir.“

...